Uppfært 28. október 2026. Heimild: Pókersamband Íslands (PSÍ).
Hér finnur þú dagskrá Íslandsmótsins í póker 2026, alla Íslandsmeistara frá 2009 og helstu mót Pókersambands Íslands. Fréttir af mótunum birtast í flokknum Póker. Reglur, hendur og reiknivélar eru á síðunni Póker á Íslandi.
Íslandsmótið í póker 2026
Íslandsmótið verður haldið á Hótel Borg í Reykjavík dagana 1.–8. nóvember 2026. Þátttökugjald í aðalmótinu er 80.000 kr. til kl. 12:00 fimmtudaginn 5. nóvember og 88.000 kr. eftir það.
| Dagur | Mót | Þátttökugjald |
|---|---|---|
| Sun. 1. nóv. kl. 13:00 | Íslandsmótið í PLO | 40.000 kr. |
| Mán. 2. og þri. 3. nóv. | Síðustu undanmót fyrir aðalmótið | 10.000 kr. |
| Mið. 4. nóv. kl. 18:00 | Mystery Bounty, hliðarmót | 40.000 kr. |
| Fim. 5. nóv. kl. 18:00 | Íslandsmótið, dagur 1a | 80.000 kr. / 88.000 kr. |
| Fös. 6. nóv. kl. 18:00 | Íslandsmótið, dagur 1b | 80.000 kr. / 88.000 kr. |
| Lau. 7. nóv. kl. 13:00 | Íslandsmótið, dagur 2 | – |
| Sun. 8. nóv. kl. 14:00 | Lokaborð | – |
Íslandsmótið í net-PLO fer fram 22. nóvember og Íslandsmótið í netpóker 29. nóvember. PSÍ áskilur sér rétt til breytinga á dagskránni.
Íslandsmeistarar í póker frá 2009
| Ár | Íslandsmeistari | Keppendur | Staður | Þátttökugjald |
|---|---|---|---|---|
| 2025 | Sigurður Þorgeirsson | 106 | Hugaríþróttafélagið | 80.000 kr. |
| 2024 | Hafþór Sigmundsson | 125 | Hugaríþróttafélagið | 80.000 kr. |
| 2023 | Agnar Jökull Imsland Arason | 101 | Hugaríþróttafélagið | 80.000 kr. |
| 2022 | Atli Rúnar Þorsteinsson | 89 | Hugaríþróttafélagið | 80.000 kr. |
| 2021 | Guðmundur Auðun Gunnarsson | 90 | Póker Express | 75.000 kr. |
| 2020* | Logi Laxdal | 96 | Póker Express | 75.000 kr. |
| 2019 | Örnólfur Smári Ingason | 119 | Hótel Vellir | 60.000 kr. |
| 2018 | Ívar Örn Böðvarsson | 87 | Hótel Vellir | 60.000 kr. |
| 2017 | Ísak Atli Finnbogason | 78 | Borgarnes | 70.000 kr. |
| 2016 | Guðmundur Vignir Jack | um 70 | Kópavogur | 67.000 kr. |
| 2015 | Aðalsteinn Pétur Karlsson | 134 | Borgarnes | 60.000 kr. |
| 2014 | Eysteinn Einarsson | 142 | Borgarnes | 55.000 kr. |
| 2013 | Heimir Guðbergsson** | 152 | Loftleiðir | 67.000 kr. |
| 2012 | Aníka Maí Jóhannsdóttir | 139 | Hótel Örk | 67.000 kr. |
| 2011 | Örvar Bjartmarsson | 201 | Hótel Örk | 60.000 kr. |
| 2010 | Stefán Arngrímsson | 214 | Hótel Örk | 60.000 kr. |
| 2009 | Axel Einarsson | 191 | Hilton Nordica | 40.000 kr. |
* Mótinu 2020 var frestað og það var spilað í mars 2021.
** Árið 2013 varð Adrian Milroy efstur á mótinu, en Heimir Guðbergsson, sem varð annar, hlaut titilinn Íslandsmeistari.
Aníka Maí Jóhannsdóttir varð árið 2012 fyrsta konan til að verða Íslandsmeistari í póker. Flestir keppendur voru árið 2010, 214 talsins.
Önnur mót Pókersambandsins
- Midnight Sun Poker í maí, með Smábokka og Stórbokka. Stórbokki er dýrasta mót ársins, þátttökugjaldið var 150.000 kr. árið 2026.
- Íslandsmótið í PLO (Pot Limit Omaha), haldið í tengslum við Íslandsmótið.
- Íslandsmótin í netpóker og net-PLO í nóvember.
- Bikarkeppni á netinu frá febrúar til mars.
Pókersamband Íslands
Pókersamband Íslands var stofnað árið 2007 og hefur haldið Íslandsmótið frá 2009. Formaður sambandsins frá ársþingi í janúar 2026 er Einar Þór Einarsson. Sambandið er aðili að alþjóðasamtökunum IFMP. Lagalega stöðu pókers á Íslandi útskýrum við á síðunni Lög um fjárhættuspil.